SildarvinnslanSVNSíldarvinnslan hf. - Þátttaka í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu í Arctic Fish Holding AS
Síldarvinnslan hf., sem er eigandi 35,89% hlutar í Arctic Fish Holding AS („Arctic Fish“), tilkynnir hér með um þátttöku félagsins í fyrirhugaðri hlutafjáraukningu hjá Arctic Fish. Fyrirhuguð hlutafjárhækkun nemur samtals 8.271.715 hlutum og miðast verð við gengi hluta í félaginu við lok viðskiptadags á Euronext vaxtamarkaðinum í Noregi þann 26. nóvember sl. sem var NOK 21,60 og nemur heildarfjárhæð hækkunar um EUR 16,67 milljónum. Hafa tveir stærstu hluthafar félagsins Mowi ASA (eigandi 53,82%) og Síldarvinnslan gefið vilyrði fyrir að skrá sig fyrir hlutum í samræmi við eignarhlutfall. Hlutur Síldarvinnslunnar í hlutafjárhækkuninni myndi þannig nema 40% eða samtals um EUR 6,7 milljónum. Hlutafjárhækkunin er meðal annars háð samþykki hluthafafundar Arctic Fish.
Frekari upplýsingar um hlutafjárhækkunina er að finna í tilkynningu Arctic Fish sem birt var fyrr í dag.
Sjá tilkynningu á meðfylgjandi slóð:
https://live.euronext.com/en/product/equities/NO0010917719-MERK#CompanyPressRelease-12926528
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Fler nyheter från Sildarvinnslan
- 19 nov. 2026Síldarvinnslan: Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði ársins 2026
- 17 nov. 2026Síldarvinnslan hf. birtir afkomu þriðja ársfjórðungs 2026 fimmtudaginn 19. nóvember 2026 eftir lokun markaða
- 10 nov. 2026Síldarvinnslan hf. – Samþykkt kauptilboð í nýjan frystitogara
- 9 nov. 2026Síldarvinnslan hf. - Jákvæð afkomuviðvörun
- 30 sep. 2026Síldarvinnslan hf.: Viðskipti stjórnenda og nákomins aðila stjórnenda.
