Sildarvinnslan (SVN)
9 november 2026 kl. 18:36(GLOBENEWSWIRE)

Síldarvinnslan hf. - Jákvæð afkomuviðvörun

Síldarvinnslan hf. - Jákvæð afkomuviðvörun

Í afkomuspá félagsins, sem birt var í maí sl., var gert ráð fyrir að EBITDA hagnaður samstæðu félagsins yrði á bilinu 105–115 milljónir EUR á árinu 2026.

Við vinnu stjórnenda að uppgjöri félagsins eftir fyrstu níu mánuði ársins hefur komið í ljós að afkoma er betri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir. Þannig er EBITDA hagnaður eftir fyrstu níu mánuði ársins þegar við neðri mörk fyrri afkomuspár fyrir árið í heild.

Gott árferði hefur verið á mörkuðum félagsins auk þess sem veiðar og vinnsla hafa gengið vel á árinu.

Endurskoðuð áætlun stjórnenda félagsins gerir nú ráð fyrir að EBITDA hagnaður ársins verði á bilinu 130 –140 milljónir EUR.

Félagið mun birta níu mánaða uppgjör sitt þann 19. nóvember nk. í samræmi við fjárhagsdagatal félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!