Síldarvinnslan hf. – Samþykkt kauptilboð í nýjan frystitogara
Síldarvinnslan hf. hefur fengið samþykkt kauptilboð í nýsmíðaðan frystitogara, sem er í eigu skipasmíðastöðvarinnar Tersan Shipyard í Tyrklandi.
Skipið er 90 metra langt og 18 metra breitt, með 6.100 kw. aðalvél.
Skipið er öflugur vinnslutogari með 2.700 m³ frystilest og frystigetu sem nemur um 250 tonnum á sólarhring. Um borð er fjölbreytt vinnsla ásamt fiskimjöls- og lýsisverksmiðju sem gerir kleift að nýta hráefni vel um borð, mjöllestin er 600 m3.
Fyrirhuguð kaup eru liður í endurnýjun skipaflota Síldarvinnslunnar hf. og er gert ráð fyrir að skipið leysi frystitogarann Blæng af hólmi.
Unnið er að frágangi endanlegs kaupsamnings, meðal annars varðandi afhendingu og tæknileg atriði. Félagið mun upplýsa nánar um viðskiptin þegar endanlegur kaupsamningur hefur verið undirritaður.
Nánari upplýsingar veitir Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar hf. í síma 470-7000 eða á fjarfestir@svn.is
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
