Annons
Síminn hf. logotypSíminn hf.
27 november 2026 kl. 16:31(GLOBENEWSWIRE)

Ásar hf. - Breytingar á hlutafé

Ásar hf. - Breytingar á hlutafé

Þann 20. nóvember sl. var tilkynnt að gengið hefði verið frá kaupum Ása hf. á öllu hlutafé í Opnum kerfum hf. („OK“) og Öryggismiðstöð Íslands hf. („Öryggismiðstöðin“). Kaupverðið var að hluta greitt með samtals 418.496.884 hlutum í Ásum hf., annars vegar 280.000.000 nýjum hlutum sem stjórn gaf út á grundvelli heimildar hluthafafundar frá 28. janúar sl. og hins vegar 138.496.884 eigin hlutum félagsins.

Hlutafjárhækkunin hefur nú komið til framkvæmdar og heildarfjöldi hluta í Ásum hf. er því í dag kr. 2.680.000.000 að nafnverði og fylgir eitt atkvæði hverjum hlut í félaginu. Félagið á 6.969.357 eigin hluti eftir afhendingu eigin hluta vegna kaupanna.

Að öðru leyti er vísað til fyrri tilkynninga félagsins um kaup á OK og Öryggismiðstöðinni, dags. 18. desember 2025 og 20. nóvember 2026.

Tilkynning þessi er gerð með vísan til 19. gr. (breyting á hlutafé eða atkvæðisrétti) laga nr. 20/2021 um upplýsingaskyldu útgefenda verðbréfa og flöggunarskyldu.


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire
Annons

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!