Síminn hf.Ásar hf. – Nýr forstjóri Símans og stofnun miðlafélags
Logi Karlsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans ehf. og tekur við starfinu 1. desember nk. María Björk Einarsdóttir hefur stýrt Símanum samhliða starfi forstjóra Ása frá því að fjarskiptareksturinn var færður í sérstakt dótturfélag í júlí.
Logi hefur verið framkvæmdastjóri tækniþróunar hjá Símanum frá 2023 og samhliða sinnt starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni hjá Ásum. Áður starfaði Logi hjá Íslandsbanka frá 2016, síðast sem forstöðumaður nýsköpunar og stafrænnar þróunar. Logi er með Ph.D.-gráðu í markaðsfræði og MBA-gráðu, hvort tveggja frá Sydney Business School, og BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Samhliða munu upplýsingatæknimál Ása flytjast á önnur svið og fækkar framkvæmdastjórum um einn.
Stofnun miðlafélags
Auk fyrrnefndra skipulagsbreytinga er unnið að því að sameina miðla- og auglýsingastarfsemi samstæðunnar í sérstöku dótturfélagi Ása. Þar með verður til félag sem byggir á áralangri reynslu, öflugum innviðum og breiðri þekkingu á sviði sjónvarps, umhverfismiðla, auglýsinga og tæknirekstrar.
Félagið mun sinna auglýsingasölu ásamt heildsölu, dreifingu og rekstri innviða á sviði miðla og auglýsinga. Stefnt er að því að yfirfærslunni verði lokið um komandi áramót. Breytingarnar hafa engin áhrif á sjónvarpsþjónustu Símans.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása hf.:
„Logi þekkir rekstur og starfsfólk Símans vel og hefur náð eftirtektarverðum árangri á miklum umbreytingartímum. Hann hefur meðal annars leitt uppbyggingu 5G-þjónustu Símans og stafræna þróun félagsins, þar sem eldri innviðum hefur markvisst verið skipt út og gervigreindarlausnir innleiddar með skýrum ávinningi. Hann er því vel í stakk búinn til að leiða Símann inn í næsta kafla.
Með kaupunum á Billboard og kröftugri fjárfestingu í hugbúnaðar- og tækniþróun undanfarin ár hafa tekjur af miðlarekstri samstæðunnar aukist umtalsvert. Með færslu miðla í sérstakt félag skapast svigrúm til að byggja ofan á þann grunn, sækja ný vaxtartækifæri og þjónusta stærri hóp viðskiptavina, meðal annars aðra efnisveitendur og miðla.“
Logi Karlsson, forstjóri Símans ehf.:
„Ég vil þakka stjórn og forstjóra Ása fyrir traustið. Sá heiður sem mér er sýndur endurspeglar fyrst og fremst það góða starf sem starfsfólk Símans hefur unnið undanfarin ár og staðfestir að félagið er á réttri leið. Ég hlakka til að taka við keflinu hjá fyrirtæki sem hefur verið leiðandi í nýsköpun síðustu 120 ár, stendur á traustum grunni og býr að framúrskarandi hópi fólks sem ég hef fengið að kynnast vel.
Með breyttu skipulagi getum við einbeitt okkur enn betur að kjarnastarfseminni: að veita framúrskarandi fjarskiptaþjónustu um land allt á öruggum vestrænum kerfum.
Fram undan er áframhaldandi uppbygging 5G með auknu notagildi fyrir viðskiptavini, sókn í sértækum lausnum fyrir þau sem gera kröfur um það allra besta sem markaðurinn býður upp á, ásamt markvissri hagnýtingu tækninnar til að auka skilvirkni í rekstri og bæta góða þjónustu enn frekar.“
Ásar eru vaxandi samstæða þjónustufyrirtækja sem byggja á stafrænum grunni, trausti og öryggi. Helstu eignir Ása eru Síminn, Öryggismiðstöðin, OK, Greiðslumiðlun Íslands og Billboard.
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
