Fossar fjárfestingarbankiFOS240911=ICFossar fjárfestingarbanki hf.: Útboð á víxlum á fimmtudaginn 19. nóvember 2026
Fossar fjárfestingarbanki hf. efnir til útboðs á víxlum á fimmtudaginn 19. nóvember 2026.
Boðnir verða til sölu víxlar í 6 mánaða flokki FOS 27 0526 með lokagjalddaga þann 26. maí 2027. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum sem tekið er. Nafnverðseining víxlanna er 20 m.kr. og er útboðið því undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c- og d-liðar 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar ESB nr. 2017/1129. Bankinn áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða föstudaginn 20. nóvember 2026.
Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og flata vexti, skal skilað til Fossa fjárfestingarbanka fyrir kl. 17:00 á fimmtudaginn 19. nóvember 2026, á netfangið utbod@fossar.is.
Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu flokksins verða þá birt á vefsíðu bankans: www.fossar.is/fjarfestar. Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna 26. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar veita:
Arnar Friðriksson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 832-4023
Netfang: arnar.fridriksson@fossar.is
Ásgrímur Gunnarsson
Fossar fjárfestingarbanki hf.
Sími: 842-4040
Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
