Solid CloudsSOLIDSOLID CLOUDS HF. – Nasdaq Iceland samþykkir töku hlutabréfa úr viðskiptum
Vísað er til tilkynninga Solid Clouds hf. frá 16. og 26. nóvember 2026. Nasdaq Iceland hf. hefur í dag samþykkt beiðni félagsins um að hlutabréf þess (auðkenni SOLID, ISIN IS0000033173) verði tekin úr viðskiptum á Nasdaq First North Growth Market Iceland, sbr. tilkynningu Nasdaq Iceland sem birt var 27. nóvember 2026.
Síðasti viðskiptadagur með hlutabréf félagsins á First North verður föstudagurinn 22.
janúar 2027. Fram að þeim degi geta hluthafar átt viðskipti með bréfin í gegnum sinn
verðbréfamiðlara með sama hætti og áður.
Eftir afskráningu verða hlutabréf félagsins áfram rafrænt skráð í verðbréfamiðstöð og
eignarhlutir hluthafa haldast óbreyttir. Viðskipti verða þó ekki lengur á skipulegum
markaði og seljanleiki bréfanna getur minnkað. Félagið mun áfram halda aðalfund og
birta ársreikning í samræmi við lög um hlutafélög. Upplýsingar til hluthafa verða birtar á
vef félagsins, solidclouds.com.
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Fler nyheter från Solid Clouds
- 26 nov. 2026Niðurstöður hluthafafundar 26. nóvember 2026
- 23 nov. 2026SOLID CLOUDS HF. – Viðbótargögn vegna hluthafafundar 26. nóvember 2026
- 18 nov. 2026SOLID CLOUDS HF. – boðun hluthafafundar
- 16 nov. 2026Solid Clouds hf. - stjórn ákveður að sækja um afskráningu af First North
- 31 aug. 2026Solid Clouds hf. reports First Half 2026 Financial Results
