Íslandsbanki (ISB)
4 november 2026 kl. 16:27(MFN)

Íslandsbanki hf.: Tilkynning um endurkaup á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Á aðalfundi Íslandsbanka hf. (hér eftir „Íslandsbanki“ eða „bankinn“) sem haldinn var þann 19. mars 2026, var samþykkt að veita stjórn bankans heimild til að kaupa á næstu 18 mánuðum hlutabréf í bankanum fyrir allt að 10% af heildarhlutafé bankans í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum. 

Bankinn hefur á grundvelli framangreindrar heimildar aðalfundar bankans tekið ákvörðun um að gera hluthöfum bankans tilboð um endurkaup eigin hlutabréfa með öfugu tilboðsfyrirkomulagi (hér eftir „endurkaupin“), að fjárhæð allt að þremur milljörðum króna að markaðsverði, í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé bankans eða til að uppfylla skuldbindingar bankans samkvæmt kaupréttarsamningum við starfsfólk hans, og vegna greiðslu kaupauka, í samræmi við starfskjarastefnu bankans. 

Við endurkaupin skal hæsta leyfilega endurgjald fyrir hvern hlut ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra. 

Samið hefur verið við Kviku banka hf. („Kvika banki“) um að annast endurkaupin. Endurkaupin fara fram samkvæmt öfugu tilboðsfyrirkomulagi og samkvæmt hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæsta verði sem verður tekið. Allir hluthafar Íslandsbanka, sem skráðir eru í hlutaskrá eftir lok viðskipta dagsins í dag, 4. nóvember 2026, geta gert tilboð um að selja bréf sín til bankans fyrir milligöngu Kviku banka. 

Komi til þess að eftirspurn í endurkaupunum verði umfram hámarksfjárhæð endurkaupanna samkvæmt framangreindu mun bankinn kaupa í hlutfalli við eignarhlutfall þeirra hluthafa sem taka þátt (e. pro rata). Íslandsbanki áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta. 

Tilboðum skal skilað til Kviku banka á netfangið midlun@kvika.is merkt „Íslandsbanki endurkaup“, fyrir kl. 08:30, 5. nóvember 2026. 

Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 09:30, 5. nóvember 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er 9. nóvember 2026. 

Við lok dags 3. nóvember 2026 átti Íslandsbanki 112.381.005 eigin hluti, sem nemur 6,41% af útgefnum hlutum í bankanum. 

Endurkaupin eru gerð í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ. á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1290/2025 um sama efni. Samþykki fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi. 

Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi endurkaupin sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Ellerti Hlöðverssyni, fjármálastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1055.

Källa: MFNMFN

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!