Landsbankinn hf. (IEBD2NNH5=I)
29 oktober 2026 kl. 15:48(GLOBENEWSWIRE)

Landsbankinn hf.: Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026

Landsbankinn hf.: Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
  • Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna.
  • Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
  • Virðisrýrnun útlána og krafna eykst frá fyrra ári og skýrist að mestu leyti af versnandi horfum í byggingariðnaði sem rekja má m.a. til hás vaxtastigs. Vanefndir aukast hjá fyrirtækjum en útlánagæði í einstaklingslánum haldast sterk.
  • Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna og hækka á milli ára. Bein áhrif verðbólgu eru áfram óvenju mikil. Hreinn vaxtamunur nemur 3,2% en væntur vaxtamunur ársins í heild er 2,9-3,1%.
  • Hreinar þjónustutekjur voru 9,2 milljarðar króna, nánast óbreyttar á milli ára.
  • Lægstu íbúðalánavextir bankans eru nú fastir vextir til fimm ára, á bilinu 8,35-9,05%, á sama tíma og meginvextir Seðlabanka Íslands eru 8,0%.
  • Afkoma af vátryggingarsamningum var 2,1 milljarður króna og eykst um 22,3% á milli ára. Samsett hlutfall TM var 91,6% í lok tímabilsins.
  • Kostnaður sem hlutfall af tekjum samstæðunnar var 30,5%, samanborið við 33,2% á sama tímabili árið 2025. Hlutfallið lækkar þar sem tekjur aukast en kostnaður helst stöðugur.
  • Reiknaður tekju- og bankaskattur var 15,5 milljarðar króna samanborið við 13,0 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aukningin nemur 19,4%.
  • Eiginfjárhlutfall í lok tímabilsins var 25,0% en fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands gerir heildarkröfu um að lágmarki 20,0%.
  • Á aðalfundi bankans þann 18. mars 2026 var samþykkt að greiða 18,9 milljarða króna í almenna arðgreiðslu og 16,1 milljarð króna í sérstaka arðgreiðslu. Samtals nema arðgreiðslur til hluthafa vegna reikningsársins 2025 því 34,9 milljörðum króna. Heildar arðgreiðslur bankans frá árinu 2013 nema því 245,5 milljörðum króna.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: 

„Afkoma Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins er góð og endurspeglar traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi. Þessi árangur skapar svigrúm til að halda áfram að bjóða viðskiptavinum einfaldar, sveigjanlegar og hagkvæmar lausnir.

Við erum ánægð með að traustur rekstur og sterk fjárhagsstaða Landsbankans endurspeglist í góðu lánshæfismati frá Moody’s Ratings, þar sem bankinn er metinn fremstur íslenskra banka í fjárhagslegum styrk. Lánshæfismatið A2 endurspeglar  árangur markvissrar vinnu við að auka hagkvæmni og fjölbreytni í fjármögnun bankans. Það styrkir stöðu okkar á fjármagnsmörkuðum og skapar tækifæri til enn hagstæðari fjármögnunar sem getur skilað sér í betri kjörum fyrir viðskiptavini.

Sífellt fleiri viðskiptavinir njóta betri kjara með Vild Landsbankans og nær 4.600 einstaklingar hafa færst upp um vildarþrep á síðustu mánuðum. Það er einnig ánægjulegt að sjá aukna eftirspurn eftir tryggingaþjónustu Landsbankans, en september var söluhæsti mánuðurinn í tryggingum frá því mælingar hófust innan samstæðunnar.

Verðbólgan er enn há og hefur neikvæð áhrif á heimili, fyrirtæki og efnahagslífið í heild. Það er brýnt að ná tökum á henni svo vextir geti lækkað og skapað aukið rými til fjárfestinga og vaxtar. Í nýrri hagspá Greiningardeildar Landsbankans er gert ráð fyrir hægum hagvexti á næstunni en að horfur fari smám saman batnandi og verðbólga hjaðni á nýju ári.

Þótt vanskil einstaklinga séu enn lítil sjáum við skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auka fjármagnskostnað og geta gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja. Langvarandi samdráttur í uppbyggingu getur jafnframt haft áhrif á framboð íbúða þegar eftirspurn tekur við sér á ný. Þessi þróun er áhyggjuefni og undirstrikar mikilvægi þess að skapa aukinn stöðugleika í efnahagslífinu. Í uppgjöri bankans er aukið framlag í virðisrýrnunarsjóð til að mæta mögulegum vanefndum, sér í lagi í byggingariðnaði.

Mikið hefur verið fjallað um áhrif bankaskatts og það er vert að rifja upp að þegar bankaskattur var lækkaður í apríl 2020 lækkaði Landsbankinn útlánsvexti. Við höfum skilað umsögn um fyrirhugaða hækkun bankaskatts og fjöllum einnig um möguleg áhrif hans í skýrslu stjórnar. Eins og fram kemur í umsögn okkar myndi skatturinn hafa áhrif á fjármögnunarkostnað bankans og samkeppnisstöðu við aðra lánveitendur, s.s. lífeyrissjóði og erlenda banka. Kostnaðurinn af bankaskatti og vaxtalausri bindiskyldu samsvarar 0,65 prósentustigum í auknum fjármagnskostnaði fyrir hvert útlán en myndi hækka í 0,81 prósentustig ef áformin ganga eftir.

Innlán jukust umtalsvert á fjórðungnum, þótt ekki sé gert ráð fyrir að aukningin verði hluti af langtímafjármögnun bankans. Jafnframt var vöxtur í útlánum til fyrirtækja og ánægjulegt að sjá aukin viðskipti stórra fyrirtækja við Landsbankann.

Við héldum fyrsta Atvinnuvegaþing Landsbankans á haustmánuðum þar sem við beindum sjónum að tækni- og hugverkaiðnaði, sem er orðin ein mikilvægasta útflutningsgrein landsins. Íslenskt atvinnulíf býr yfir miklum krafti og hugviti og það skiptir máli að fyrirtæki hafi svigrúm til að fjárfesta, þróa nýjar lausnir og sækja fram.

Landsbankinn hefur í 140 ár stutt við framgang íslensks atvinnulífs. Atvinnuvegir hafa breyst og nýir orðið til en hlutverk bankans er enn það sama - að veita trausta fjármálaþjónustu, styðja við verðmætasköpun og vera til staðar fyrir fólk og fyrirtæki um allt land. Við náum betri árangri saman.“

Fjárhagsdagatal Landsbankans

  • Ársuppgjör 2026        4. febrúar 2027
  • Aðalfundur                17. mars 2027
  • 1F 2027                     29. apríl 2027
  • 2F 2027                     29. júlí 2027
  • 3F 2027                     28. október 2027
  • Ársuppgjör 2027        10. febrúar 2028

Nánari upplýsingar veita:                

Samskipti, samskipti@landsbankinn.is

Fjárfestatengsl, fjarfestatengsl@landsbankinn.is

Viðhengi


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!