Landsbankinn hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa
Landsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 10. nóvember kl. 15:00. Boðinn verður til sölu óverðtryggði flokkurinn, LBANK CB 32.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur verðtryggða flokksins LBANK CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Verð skuldabréfanna er fyrirframákveðið og er 100.
Áætlaður uppgjörsdagur er 17. nóvember 2026.
Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Landsbankans fyrir sértryggð skuldabréf. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.
Markaðsviðskipti Landsbankans hafa umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is.
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
