Kvika banki (KVIKA)
9 oktober 2026 kl. 12:59(GLOBENEWSWIRE)

Kvika banki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 13. október

Kvika banki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 13. október

Kvika banki hf. mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 13. október 2026. Boðinn verður til sölu nýr óverðtryggður flokkur á föstum vöxtum, KVIKA CB 32.

Útboð KVIKA CB 32 verður með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. öll skuldabréfin verða seld á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfu. Bankinn áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna tilboðum, í heild eða að hluta.

Áætlaður uppgjörsdagur viðskipta er 20. október 2026.

Sértryggðu skuldabréfin verða gefin út undir útgáfuramma Kviku fyrir sértryggð skuldabréf. Grunnlýsingu má finna á vefsíðu bankans hér: Áætlað er að viðskiptavakt með skuldabréfin hefjist fyrir árslok.

Verðbréfamiðlun Kviku hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið midlun@kvika.is fyrir kl. 16:00 þann 13. október 2026.

Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu  fjarfestatengsl@kvika.is.


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!