Kvika banki (KVIKA)
29 oktober 2026 kl. 14:30(GLOBENEWSWIRE)

Kvika banki hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs miðvikudaginn 4. nóvember

Kvika banki hf.: Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs miðvikudaginn 4. nóvember

Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir þriðja ársfjórðung og fyrstu níu mánuði ársins 2026 á stjórnarfundi miðvikudaginn 4. nóvember og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaðar.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn daginn eftir, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins auk þess sem Halldór Snæland, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs, mun veita innsýn í starfsemi sviðsins og helstu verkefni.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fundinn eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg áður en fundurinn hefst.


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!