Iceland Seafood International hf.: Lækkar afkomuspá fyrir árið 2026
Iceland Seafood International hf. („Iceland Seafood“ eða „félagið“) hefur endurskoðað afkomuhorfur sínar fyrir árið 2026. Endurskoðuð afkomuspá er að leiðréttur hagnaður fyrir skatta verði á bilinu 8,5–10,5 milljónir evra, sem er sambærilegt við afkomu ársins 2025, en lægri samanborið við áður birta afkomuspá upp á 11,5–13,5 milljónir evra.
Endurskoðuð afkomuspá skýrist einkum af lakari afkomu en vænst var í starfsemi samstæðunnar í Argentínu. Rekstur frystitogara varð fyrir verulegum áhrifum af bilunum sem leiddu til minni afla og lakari afkomu en markmið gerðu ráð fyrir. Þetta ásamt lakari afkomu landvinnslunnar í Argentínu er meginástæða lækkunar afkomuspár samstæðunnar. Einnig hefur áhrif lakari afkoma starfseminnar í Frakklandi vegna tapaðrar viðskiptakröfu að fjárhæð um 0,5 milljónir evra.
Stjórnendur hafa gripið til ráðstafana sem miða að því að draga úr hættu á að sambærileg rekstrarvandamál hafi áhrif á afkomu á næsta ári. Aðrir hlutar starfsemi samstæðunnar halda áfram að skila góðri afkomu.
Fjórði ársfjórðungur er mikilvægastur í starfsemi samstæðunnar og því ríkir enn nokkur óvissa um afkomu ársins. Afkoma fjórða ársfjórðungs, þar á meðal upphaf komandi Rawson-vertíðar í Argentínu, mun ráða miklu um hvar innan hins endurskoðaða afkomubils niðurstaða ársins verður.
Möguleg sala á Ahumados Domínguez er ekki frágengin og óljóst hvað söluverðið verður ef samningar nást. Endurskoðuð afkomuspá tekur ekki tillit til mögulegra áhrifa af sölu Ahumados Domínguez.
Nánari upplýsingar veitir Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri Iceland Seafood International hf., í síma +354 550 8010 eða á investors@icelandseafood.com.
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
