Festi hf.
4 november 2026 kl. 09:21(GLOBENEWSWIRE)

Festi hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Festi hf.: Niðurstöður í endurkaupum á eigin bréfum með öfugu tilboðsfyrirkomulagi

Festi hf. ákvað að taka tilboðum fyrir 2.668.681 að nv. á genginu 293,00 í endurkaupum sem tilkynnt var um 3. nóvember 2026 eða fyrir samtals kr. 781.923.533. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er 6. nóvember 2026.

Endurkaupin eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. MAR (reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum), sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Festi hf. á 9.347.545 eigin hluti eða sem nemur 2,99% af útgefnu hlutafé að loknum kaupum á þeim bréfum sem um ræðir hér að ofan.


Källa: GlobeNewswireGlobeNewswire

0 kommentarer

Kommentera nyheten

När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!

Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!