Eik fasteignafélag hf.EIKFEik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa
Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokknum EIK 120266.
Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 1.340 m.kr. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 1.300 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,00%.
Niðurstaða útboðs:
| Flokkur | EIK 120266 |
| Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur | 1.12.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 1.300 m.kr. |
| Samþykkt ávöxtunarkrafa | 4,00% |
| Fjöldi innsendra tilboða | 5 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 1.340 m.kr. |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 5 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) | 3,966% |
| Boðhlutfall | 1,03 |
Þetta var sjötta útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 8.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.
Þetta var síðasta útboð ársins samkvæmt útgáfuáætlun félagsins sem birt var í janúar 2026. Félagið hefur haldið átta skuldabréfaútboð á árinu og selt skuldabréf í þremur flokkum að nafnvirði samtals 20.000 m.kr. til breiðs hóps fjárfesta:
- EIK 120266: 8.000 m.kr.
- EIK 150531: 7.000 m.kr.
- EIK 29 1: 5.000 m.kr.
Félagið mun birta útgáfuáætlun fyrir árið 2027 í þriðju viku desember (14.–18. desember). Þar mun m.a. koma fram fjöldi útboða, dagsetningar þeirra og þeir flokkar sem félagið hyggst gefa út.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980.
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
