Arion banki: Einkaviðræður um kaup sérhæfðs sjóðs í stýringu Íslenskra verðbréfa hf. á Blikastaðalandi ehf.
Arion banki hf. hefur ákveðið að ganga til einkaviðræðna við Íslensk verðbréf hf. fyrir hönd óstofnaðs sérhæfðs sjóðs um kaup sjóðsins á öllu hlutafé dótturfélags bankans, Landeyjar ehf., í Blikastaðalandi ehf. sem á og þróar Blikastaðaland í Mosfellsbæ. Það kaupverð sem er til umræðu í viðskiptunum rúmast innan þeirra 14 til 16 milljarða króna marka sem kynnt voru í kauphallartilkynningu bankans 25. september síðastliðinn.
Íslensk verðbréf eiga í samstarfi við fasteignaþróunarfélagið Klasa ehf. um kaupin sem fyrirhugaður þróunaraðili verkefnisins ásamt því að ráðgert er að Klasi verði kjölfestufjárfestir í sjóðnum.
Viðræður aðila byggja á tilboði sem sjóðurinn lagði fram í öðrum fasa söluferlis Blikastaðalands ehf. Vonir standa til að viðræðum um kaupin ljúki fyrir lok þessa árs með gerð kaupsamnings og að kaupin komi til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi 2027.
Í árshlutareikningum Arion banka fyrir fyrstu níu mánuði ársins er Blikastaðaland ehf. metið á um 7,6 milljarða króna. Þar sem til staðar er óvissa varðandi fyrirvara tilboðs Íslenskra verðbréfa hefur ekki verið tekin ákvörðun um að uppfæra bókfært verðmat Blikastaðalands ehf. á þessum tímapunkti.
Bilagor & Media
0 kommentarer
Kommentera nyheten
När du kommenterar ett pressmeddelande publiceras din kommentar även i en speglad tråd under Börssnack så att alla i forumet kan delta i diskussionen!
Logga in eller skapa ett gratis konto för att kommentera nyheten!
